Thursday, April 05, 2007

Með Hörð og Herdísi í heimsókn.

Hæ hæ,
Við Oddgeir erum nú loksins aftur búin að fá heimsókn. Hörður og Herdís komu til okkar þann 29. mars. Þau leigðu sér að sjálfsögðu hjól strax fysta dag, og við erum búin að þræla þeim út síðan. Já, við mælum sterklega með því að þeir sem komi í heimsókn til okkar æfi sig bæði í því að ganga og að hjóla, því að við eigum ekki bíl! ;) Það var rosalega gott veður þegar þau komu, og næstu tvo daga, þannig að við nýttum þá daga til þess að rölta um í miðbænum á Lundi og njóta veðursins. Við sýndum þeim Botaniska trådgården og fleiri áhugaverða staði í miðbænum, og keyptum okkur að sjálfsögðu ís, þar sem ísbúðin er loksins búin að opna aftur eftir veturinn (hún er sko bara opin á sumrin). Þau voru steinhissa á því hvað Svíar eru skemmtilegir. Þar sem það var svo gott veður einn laugardaginn, var verið að selja gasblöðrur og fleira svoleiðis í bænum, lúðrasveitin var mætt á staðinn og það var rosalega margt fólk niður í bæ að njóta veðurblíðunnar.
En svo átti Oddgeir að sjálfsögðu afmæli þann 1. apríl. Þá fékk hann pakka. Hann fékk rosalega flott úr frá mér. Svo fékk hann 2 aukapakka við spilið Settlers frá Catan, frá Kati og Mike. Það spil er búið að vera í uppáhaldi hjá okkur og við, þ.e. Ég, Oddgeir og Kati, erum búin að spila það rosalega mikið. Að sjálfsögðu þegar Hörður og Herdís mættu á svæðið voru þau látin spila það líka með okkur, og að sjálfsögðu einnig með öðrum aukapakkanum. En við erum öll, nema Oddgeir, orðin ansi þreytt á því hvað Oddgeir vinnur spilið oft. Það liggur við að einginn annar eigi séns! ;)
Þann 2. apríl fórum við svo til Gautaborgar og skoðuðum þann bæinn. Þetta var nú meiri stórborg en maður er vanur hér. Okkur Oddgeir líkar betur við smábæarbraginn í Lundi en stórborgarfílinginn í Gautaborg og í Stokkhólmi. Við gengum svo mikið þann daginn, 2. apríl, að við gengum næstum því af Herði og Herdísi dauðum! :) Þessvegna ákváðum við bara að slappa af daginn eftir. Ég þurfti reyndar að skreppa í skólann í smástund. En svo spiluðum við bara og slöppuðum af.
Í gær skruppum við svo í Burlöv center, sem er verslunarmiðstöð í Arlöv/Burlöv, sem liggur á milli Lund og Malmö. Í dag ætlum við svo að kíkja í eina enn verlsunarmiðstöð í Lödderkopinge sem heitir Center Syd. Þar er íþrótta outlet og risa Ica Maxi, einskonar Hagkaupskeðja, ásamt helling af venjulegum og skemmtilegum búðum, eins og t.d. H og M. Með þessum degi munum við klára verslunarleiðangra Harðar og Herdísar, þar sem við verðum að skilja eftir nóg pláss í töskunum þeirra til þess að taka með allt dótið sem við ætluðum að senda þau heim með. ;)
En ég segi þá bara bæ í bili, og heyrumst síðar....
Sigrún

Friday, March 23, 2007

Jibbí - nýr póstur!!!

Ég er komin með samviskubit að hafa ekkert bloggað, þannig að hér kemur einn póstur. Við Oddgeir erum svo til nýkomin heim frá Póllandi. Við skelltum okkur til Gdansk þann 11. mars og komum til baka til Köben þann 20. mars. Við gistum á voðalega kósí litlu hóteli sem heitir Villa Isabel. Þetta var greinilega fjölskyldu-business. Það eru 7 herbergi á hótelinu og það virtist vera aðallega fjölskyldan sem afgreiddi okkur. Þetta var eins og lítill kastali og allt í voða antikstíl. Hótelið var rétt við gamla bæinn, þannig að við skoðuðum hann nokkuð vel. Helling af eld-gömlum og rosa flottum húsum, og geðveikt margar kirkjur. Það var geðveikt ódýrt að borða á veitingastað þarna. Við fórum m.a. á einn Gdanska, túrista-veitingastað, sem er frekar flottur en troðinn af dóti. Það gefur sko því að vera troðið af dóti nýja merkingu. Það var víst einhver ríkur kall sem keypti eiginlega alla verðmæta antíkmuni á svæðinu og opnaði þennan veitingastað með þeim öllum troðnum saman í. Þar borguðum við reyndar alveg 100 pólskar, sem er alveg 2.300 kall, óvenjulega mikið ha???
En svo skoðuðum við líka nokkrar af verslunarmiðstöðunum þeirra. Það er rosalegur uppgangur í landinu, þannig að hvað byggja þeir - auðvitað verslunarmiðstöðvar! Við versluðum nú samt ekki mikið, en smá. Verðlagið á þessum merkjafötum var alveg svipað og hér í Svíþjóð. Sem er nú náttúrulega minna en á Íslandi. he he he... En við fórum í eina al-pólska "verslunarmiðstöð". Þetta leit út eins og ein af þessum iðnaðargötum í niðurnýslu. Það voru nokkur hús í götunni, öll 2 hæða, að mig minnir, og hrá að innan. Þegar við gengum inn í húsin var það einskonar Kolaports-fílingur. Nema í hverju herbergi í húsunum var einn söluaðili með allskyns föt, töskur eða snyrtivörur - og sko oftast eitt eða tvennt af hverju. En reyndar voru þetta ekki notuð föt, greinilega bara samansafn af gömlum lagerum. Okkur var sagt að þarna versli margir Pólverjar á sig fatnað. En við fundum ekki neitt, eins og við var að búast. Við gáfumst reyndar upp eftir 2 hús ;)
En við fundum geðveikt flotta útivistarbúð, þar sem við gátum keypt þunna göngusokka á 300 kall íslenskar, mjög gott verð. Þannig að við keyptum að sjálfsögðu svoleiðis, og Oddgeir varð náttúrulega líka að kaupa sér veiðihjól og veiðihatt, he he he... En í staðinn fékk ég að kaupa mér nýja spariskó í annari búð að sjálfsögðu.
En nóg um búðarráp. Við skoðuðum að sjálfsögðu líka Gdyniu og Sopot. En þær tvær ásamt Gdansk mynda tri-city. Sopot er túristaparadísin, með hvítri strönd, skemmtilegri göngugötu og þar er hægt að finna sér Spa og flott hótel. En það var ekki nægilega gott veður fyrir strandarferð hjá okkur. En við gengum nú samt eftir löngu bryggjunni þeirra, og göngugötunni og fengum okkur köku á einu kaffihúsinu.
Ég verð að hryggja ykkur með því að við fórum ekki að skoða neitt safn. En við fórum samt sem áður að skoða freedom sýninguna þeirra, sem er utanhúss í Gdansk. Þar sem við sáum gamlar myndir, skúlptúra og part úr Berlínarmúrnum, ásamt mynd af þeim sem stóðu í röð við hann til þess að verða skotnir. Ekki mjög fallegt það.
En allt í allt var þetta mjög skemmtileg ferð hjá okkur.
Svo er gaman að segja ykkur frá því að þann 29. mars, þ.e. á næsta fimmtudag koma Hörður og Herdís í heimsókn til okkar. Alltaf gaman að fá skemmtilegt fólk í heimsókn!
En ég kveð þar til næst - og við skulum vona að það verði ekki langt þangað til það verður!

Wednesday, February 21, 2007

Gleðilegan öskudag!

Hvað ætlið þið að vera? Það var spurninginn sem hjómaði á vörum allra í gamla daga, a.m.k. þegar ég var lítil, fyrir öskudaginn. Hvað ætlar þú að vera á Öskudaginn? Ætlar þú að vera prinsessa, sjóræningi, Batman eða kannski Súperman eða auðvitað smá-barn?
Ég er að hugsa um að fara niður í bæ á eftir og kaupa mér eitthvað sniðugt í dótabúðinni þannig að ég geti farið sem prinsessa, engill, sjóræningi eða eitthvað þessháttar í kvöldmat á nationinu okkar í kvöld. Maður verður nú að halda Öskudaginn í heiðri.

Saturday, February 10, 2007

Sudoku þraut!

Jæja eins og ég lofaði þá er hérna komin þessi blessaða Suduko þraut, sem eitthvað vafðist fyrir mér, einsog ég sagði þarna til að byrja með þá getur verið að ég hafi bara ekki verið með hugan við efnið, en hvað um það, þetta er sú Suduko þraut sem mér finnst hingað til hafa verið erfiðust. Endilega prentið hana út og glímið við hana.

En ég bið ykkur um að pósta ekki svarinu á þessa síðu því það myndi hugsanlega eyðileggja fyrir öðrum sem vilja glíma við þrautina. En ykkur er að sjálfsögðu leyfilegt að láta vita hvernig ykkur fannst hún.

1

5

6

4

6

4

7

2

2

1

8

7

4

8

9

2

5

3

4

8

9

6

7

3

Einnig ætla ég að benda ykkur á að í Sudoku þarf ALDREI að giska á rétta tölu, það er ALLTAF hægt að sjá út hvaða tala á að vera á hvaða stað. Þannig að ekki eyðileggja skemmtun ykkar með röngum aðferðum.

Góða skemmtun!

Tuesday, February 06, 2007

Ferðalag dagsins í dag....

Ég var reið í gær. Reið út í sænska kerfið. Reið yfir því að svíar geta aldrei haft neitt einfalt. Reið yfir því að ég get ekki fengið tölvukort í lögfræðideildinni í Lundi af því að ég er í ,,frístandandi kúrsum" og því ekki skráð í deildinna; og síðast en ekki síst reið yfir því að ég get ekki prentað neitt út þess vegna! Þannig að ég ákvað að kaupa prentara.
Þannig að ég fann prentara á góðu prísi eða einungis 3.000 íslenskar krónur í Elgiganten, sem er eiginlega Elko. Svo lagði ég af stað, og dró Oddgeir náttúrulega með mér, í ferðalag til þess að kaupa þennan prentara. En þegar við komum á staðinn þar sem búðin átti að vera fundum við hana ekki. Þetta var að sjálfsögðu vegna þess að ég er frekar áttavillt manneskja og á því erfitt með að lesa út úr kortum og yfirfæra þau á göturnar sem ég sé (en að sjálfsögðu tók ég ekki kortið með mér). Þannig að við hjóluðum í einn og hálfan klukkutíma. Fundum reyndar búðina, en auðvitað var prentarinn uppseldur.
Þannig að við fórum heim. En þar sem ég var líka orðin leið á því að eiga ekkert sjónvarp hafði ég haft samband við mann sem var að selja gamla sjónvarpið sitt á netinu. Þetta er risastórt 28 tommu gripur, í lit og allt, og á þessu góða prísi eða einungis 2.000 íslenskar krónur. Þannig að að sjálfsögðu dró ég Oddgeir út og við héldum af stað í strætó í næsta bæjarfélag í 30 mín. Þar keyptum við svo sjónvarpið og fórum svo tilbaka í strætó í 30 mín. Auðvitað þurfti Oddgeir að bera það næstum alla leiðina einn. En hann kvartaði ekkert.
Þannig að við eigum núna þetta gæða sjónvarp, 28 tommu, stærra en gæða sjónvarpið sem við áttum heima (reyndar suða þau bæði, en það er annað mál), og með fjarstýringu, sem er nú meira en fylgdi sjónvarpinu okkar heima!
Nú erum við á grænni grein! Búin að þvælast í næsta bæjarfélag með strætó og kaupa sjónvarp (sem var by the way mjög þungt). Sannir Íslendingar!

Tuesday, January 30, 2007

Vegna þess að það vantaði eiginlega mynd fáið þið hérna að sjá skemmtilega mynd af Oddgeiri á gamlárskvöld í Þorlákshöfn.

Tómt tjón!

Við Oddgeir vorum í mestu makindum að horfa á Boston Legal í dag þegar talvan, flotta talvan, hrundi! Þannig að núna verðum við að horfa á video í minni tölvu með leiðindaskjánum.
Ég er ekki búin að vera í skólanum í gær eða í dag. Kennarinn minn skrapp til Víetnam í viku þannig að það er engin kennsla á meðan. En massív þegar hann kemur til baka. Þannig að það er eins gott að lesa vel á meðan.
Við Oddgeir erum ekkert búin að gera neitt svo merkilegt. Við fórum í venjulega sunnudags-brunch-inn hjá einu nationinu (stúdentafélagi) á sunnudaginn og svo í venjubundna sunnudagsbíóið um kvöldið, sem er í öðru nationi. Við vorum eiginlega ekki búin að fara neitt eftir að við komum til baka hingað, leti og svona :) Sunnudagsbíóið var Superman returns. Ég var búin að gleyma því hvað hún var löng og langdregin. Oddgeir var alveg að sofna. he he he. En reyndar var þetta mjög flott mynd, en það hefði mátt gerast aðeins meira á öllum þessum tíma.
Svo fórum við á laugardagskvöldið á annað nation, sem var með rock-kvöld. Það var nú meira rockið. Bara svona 5 lög sem ég þekkti, eða eitthvað svoleiðis. Þungarokk inn á milli og einhver lög sem ég bara hafði aldrei heyrt áður. Samt sem áður tel ég mig nú alveg hlusta á ýmist rokk. En kannski er ég bara að misskilja.
Á morgun er svo annar dagur heima að lesa. Það er nú ansi erfitt að vera heima og lesa þegar maður hefur helling af skemmtilegum tímaritum, tölvuna og internetið, aðrar og meira freistandi bækur, og videoþætti, og náttúrulega mat, og þvottinn í dag. Það er bara erfitt að halda sér við lesturinn... :)

Sunday, January 21, 2007

Alvaran kallar...

Nú erum við næstum því búin að koma okkur aftur fyrir hér í Lundi eftir jólafríið. Allt er að komast aftur í sínar gömlu föstu skorður, t.d. kíkir Oddgeir á veðurfréttirnar 5 sinnum á dag. Skólinn er að byrja hjá okkur. Ég er búin að fara í kynningartíma í íþróttasálfræðinni og er að fara í kynningartíma í samanburðar-evrópu-réttarsögunni í fyrramálið. Þetta verður allt saman mjög spennandi. Að fá að fara í flotta lögfræðihúsið...
Við fengum gesti með okkur til Lunds í 4 daga, eða 4,5 (eða eitthvað svoleiðis). Haffi, Eva, Gunni og Heiða sváfu á gólfinu hjá okkur á vindsængum. Við kíktum með þeim til Helsingborg á innibandýleik - hvað annað - og að sjálfsögðu kíktum við aðeins á þá borg í leiðinni. Daginn sem þau komu fórum við á Carlsberg safnið í Köben. Það var nú lítið merkilegt. Það eina sem var merkilegt var að við fengum að smakka 2 tegundir af bjór. Gott fyrir þá sem fíla bjór. En svo fórum við út að borða á Reef n Beef, sem er ástralskur veitingastaður, einnig í Köben, sem selur m.a. krókódílakjöt og kengúrukjöt. Við stelpurnar fengum okkur allar The hunted hunter, sem þið getið giskað á hvað var. Oddgeir gæddi sér á kengúru sem var svo skolað niður með rauðvíni sem bragðaðist næstum því eins og hvítvín. Þetta var í annað skiptið okkar Oddgeirs sem við förum á þennan veitingastað. Oddgeir hafði áður fengið sér krókódíl, sem var það sem ég fékk mér núna, ef þið höfðuð ekki áttað ykkur á því, og þá fékk ég mér emufugl, sem er einhver skrítinn stór fugl sem kann ekki að fljúga. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, svo framarlega sem það er innan skynsamlegra marka. Ég hleypi ekki sniglum inn fyrir mínar varir. Þeir eru bara svo slímugir og ógeðslegir. Ég held að það séu ekki til ógeðslegri dýr á jarðríkinu. En ég ætla að leyfa ykkur að dæma um það fyrir ykkur sjálf.