Sunday, September 24, 2006

Góðan daginn!

Þessi menningarnótt Lundar var aðeins öðruvísi en menningarnóttin heima. 
Hérna gekk allt mest út á að hafa það rólegt og þægilegt - og borða. Það var matur allsstaðar. 
Veitingastaðirnir með borðin úti og líka matsölur á torgunum. En flest allt virtist vera úti.
Svo voru náttúrulega einhverjar hljómsveitir. 
Við sáum aðal lúðrasveit bæjarins með svaka show í AF building. Þetta er stuð-sveit. Allir klæddir í hvítt að ofan og rauðar hnébuxur. Svo er svaka stuð á þeim. Þau eru meira að segja með klappstírur sem dansa með pom-poms á meðan þau eru að spila ;) En við sáum líka stjörnur. Við vorum of sein að fá aðal-sýninguna í Planiterium. En við fengum bara betra - barnasýningu í uppblásnu kúlu tjaldi. Það var alveg dimmt inni í tjaldinu og svo var stjörnufræðingur með lampa sem sýndi allar stjörnurnar og sagði á smá barnamáli frá. 
Ég ætla líka að segja ykkur frá einu - það er ógeðslega mikið af sniglum hérna þegar það rignir.
Það er ógeðslegt! Þeir eru geðveikt slímugir og stórir. Ojjj.. Sem betur fer er ekki búið að rigna mikið síðustu 2 vikurnar. En svo eru broddgeltir hérna. Oddgeir sá einn áður en að ég, Sigrún, kom. Svo sá ég einn um daginn. En hann var dauður - og kraminn við götuna. Æ, æ, aumingja hann... En svo þegar það kemur myrkur á nóttunni þá fer maður að sjá alla froskana.
Þeir eru flestir mjög litlir, en við sáum einn frekar stóran um daginn. Svo höfum við líka séð kanínu, en þær eru nú ekki mjög merkilegar. Annars er maður nú hættur að sjá þær í Öskjuhlíðinni heima ;)
Svo er rosalega mikið, og já, ég meina rosalega mikið, af geitungum hérna. Þeir eru margfalt fleiri
en á Íslandi. Sem betur fer, að því leitinu til, er farið að kólna aðeins hérna þannig að þeim er
aðeins farið að fækka. Fólkinu hérna er alveg sama um þá. Þeir setjast á þau og þau bara blása þeim í burtu eða ýta aðeins við þeim. Alveg merkilegt að vera ekki hræddur við geitunga!
En það eru líka ennþá stærri flugur hérna, einhverskonar drekaflugur eða eitthvað svoleiðis. Annars hef ég ekki hugmynd um hvað þetta heitir. Þær eru grænleitar og RISA stórar og langar.
Mjög flottar úr fjarlægð, en hræðilegt þegar þær koma of nálægt. En þær eru líka ekkert mjög vanalegar. En gaman að vera búin að fræða ykkur um dýraríkið hérna. Vonandi hafið þið haft gaman af. Ég ætla núna að fara að halda áfram að skrifa aðeins í ritgerðinni minni áður en
Oddgeir vaknar.
Bæ í bili.