Saturday, September 23, 2006

hæ hæ gott fólk

Arg, ég, Sigrún, var búin að skrifa einn góðan póst fyrir ykkur og það datt svo 
allt út!  En ég ætla að reyna að gera nýjan í staðinn.
Við Oddgeir erum búin að læra í allan dag, þrátt fyrir að það sé laugardagur. Þið gætuð meira að segja farið að halda að við séum dugleg! Fyrsta önnin af 4 er að klárast þannig að við þurfum að skila inn verkefnum. Oddgeir er búin að vera að gera hópverkefni (gruppövning) og ég er búin að vera að gera ritgerð (hemskrivning). Sem betur fer getum við unnið þetta á ensku, þar sem að sænskan er ekki alveg komin í nægilega gott stand til þess að hægt sé að skrifa ritgerðir og þessháttar án mikilla málfræði og orðavillna ;)
Í kvöld er kulturnatt í Lund (eða menningarnótt). Það er víst nóg um að vera. Allir niðri í miðbænum og svaka gaman. Hver veit nema við kíkjum þangað og reynum að finna eitthvað skemmtilegt að gera. Ég hef ekki hugmynd um hvort að þetta sé eitthvað svipað og heima í Reykjavík, en það er allavega heljarinnar dagskrá. Meira að segja hægt að fara í stjörnuskoðun!
Svo náttúrulega þetta venjulega, hljómsveitir og svoleiðis.
Í gærkvöldi borðuðum við kvöldmat með Kati vinkonu okkar. Hún kemur frá Austurríki og býr á sama svæði og við. Næstum því bara í næsta húsi. Það var rosa gaman hjá okkur fyrir utan það að ÉG þurfti að hlaupa í þvottahúsið alltaf af og til vegna þess að þetta var eini tíminn, eftir 2 vikna bið sem við gátum fengið þvottatíma. Stundum er alveg agalegt að fá þvottatíma hérna, þar er gjörsamlega allt orðið skítugt þegar maður getur loksins þvegið eitthvað, og þá er ekki einu sinni víst að maður fái nægan tíma til að þvo allt. Við fórum og töluðum við skólan út af þessu hvort að það væri ekki hægt að gera eitthvað. Hvort að við gætum t.d. fengið tvo þvottalykla til þess að panta þvottatíma, þar sem við erum nú tvö. En við fengum bara svarið: ,,life is not always fair" og þannig endaði það samtal! Ótrúlegt hvað margir hérna eru ósveigjanlegir. Meira en á Íslandi ;)
En jæja, við verðum að fara að gera eitthvað skemmtilegt núna. Það er komin tími til.
Meira síðar.