Hæ hæ
Ég, Sigrún, er loksins búin að skila inn þessu lokaverkefni mínu, þannig að
vonandi er ég búin með þann kúrs ;) Oddgeir er líka farinn að hressast. Hann er búinn að vera með hálsbólgu og kvef. Ekki gaman af því, þegar það er búið að vera að mestu leyti í kring um 20 stiga hiti. En reyndar er loftið hérna mjög rakt. Gæti haft eitthvað með það að gera. Þegar við þvoum fötin okkar reynum við að setja sem mest í þurkarann. Það sem við setjum ekki í þurkarann er að minnsta kosti 3 - 4 daga að þorna, inni. Mjög skrítið!
En sólin er farin í bili! :-( Það var búið að vera skólskin í marga marga daga, en núna er aftur farið að rigna - og það verður sko rigning hérna. það er sko engin Íslands-rigning, heldur meira eins og Spánar-rigning, eða kannski Amason-rigning (eða núna er ég kannski aðeins að ýkja, en hún verður oft mjög mikil). Við skulum vona að það verði ekki svoleiðis lengi...
Heyrumst seinna.

<< Home