Hej allihopa,
Við erum búin að vera rosa dugleg að læra í dag. Vi har vårit jätte dugtiga att plugga (við ábyrgjumst ekki að þetta hafi verið rétt). Við vorum svo heppin að fá heimsókn fyrir nokkrum dögum, Hlyn og Örnu, og að sjálfsögðu nenntum við ekki að læra mikið á meðan. Miklu skemmtilegra að skoða sig um og gera eitthvað skemmtilegt. Við fórum t.d. í tívolíið. Við fórum í nýja tækið himmel-eitthvað. En það var ekkert svo skemmtilegt. Að sjálfsögðu fórum við líka í turninn, hann er alltaf skemmtilegur. En mikið ógeðslega fer hann hátt!
Við erum bara búin að hafa það frekar rólegt núna um helgina, allavega í gær og í dag. Við leigðum okkur sænskar myndir í gær. Já, merkilegt nokk, þá bara skildum við heilann helling af þessari mynd sem við horfðum á í gær! Það er kannski eitthvað af þessu máli að síast inn. Gaman að segja ykkur frá því að það virðist vera standardinn hérna að leigja myndir í 7 daga, en ekki bara einn. Það er samt hægt að leigja í einn. En þegar við leigðum þessar 3 gömlu, sæsku myndir vorum við ekki einu sinni spurð hvað við vildum leigja þær lengi. Gamlar myndir eru víst bara leigðar í 7 daga. En kosta náttúrulega það sama og að leigja gamla mynd heima í einn dag, held ég allavega... 20 kr. sænskar (200 kr. ísl.). Já, það er alltaf gaman að spá í því hvað hlutirnir heima kosta. Yfirleitt verður maður mjög ánægður yfir því að vera hér.
En nú þurfum við að halda áfram að læra. Fleiri fréttir síðar.
Hej då.

<< Home