Við lentum í veseni í dag, eða tæknilega séð í gær, allavega samkvæmt okkar tíma. Þannig var að við áttum þvottatíma í þvottahúsinu, sem er ávallt hátíð, þar sem erfitt getur reynst að fá svoleiðis tíma. Við vorum meira að segja svo heppin að við fengum nokkrar klukkustundir, eða extra langan tíma, við skiptum nefninlega við vinkonu okkar sem þurfti einmitt að vinna þegar hún átti þvottatíma. Klukkan hálf 2 í dag, þegar hálftími var liðinn af þvottatímanum okkar, þar sem við áttum svo langan tíma að við vorum ekkert að flýta okkur, fórum við í þvottahúsið og settum tvær vélar í gang. Þegar 50 mín. voru liðnar og vélarnar okkar ættu að vera búnar röltum við svo aftur að þvottahúsinu. En okkur til mikilla ama var þá búið að taka fötin okkar úr vélinni og henda þeim í hrúgu á gólfið fyrir utan þvottahúsdyrnar, og læsa inn í þvottahúsið. Við fáum nefninlega svona skráargata-læsingu, sem við getum sett í skráargatið og læst svo enginn annar komist í þvottahúsið á meðan fötin okkar eru þar. En við höfðum ekki sett okkar í þar sem við skiptum við vinkonu okkar um tíma eins og fyrr segir.
Að sjálfsögðu athuguðum við aftur hvort við hefðum ekki örugglega rétt fyrir okkur og þvottatíminn okkar væri nú á þessum tíma, sem og var. Þannig að við fórum og hringdum bjöllunni hjá þessu fólki sem hafði hent fötunum okkar í burtu. En enginn svaraði. Við höfðum ákveðið að fara í ræktina, ég (Sigrún) ætlaði í danstíma sem ég var búin að bíða lengi eftir og er bara á laugardögum, en ekkert varð af þeim plönum þar sem við þurftum að sitja um fólkið í ca. klukkutíma. Þegar þau loksins komu voru þau afskaplega miður sín. Þau báðust fyrirgefningar aftur og aftur og sögðust hafa haldið að það væri 6. í dag en ekki 7. eins og var!!! En Halló! Hver hendir fötum sem aðrir eiga út úr þvottahúsinu í hrúgu þar sem allir geta tekið þau? Og hvaða heilvita maður fattar ekki að ef það er allt upp pantað a.m.k. rúmlega viku fram í tímann en ekkert áður að sá dagur sem ekkert er á, getur hann ekki verið dagurinn í dag?
Eftir þessar hrakningar varð ekki mikið annað af deginum en að þvo AFTUR fötin okkar sem hafði verið hent í burtu, og allt hitt sem við áttum eftir að þvo. Þannig að ég missti af danstímanum sem ég hafði beðið eftir alla vikuna og við komumst ekki einu sinni í ræktina þar sem hún lokar svo snemma á laugardögum að það var búið að loka þegar við loksins vorum búin að þvo.
Það þarf nú varla að segja frá því að þegar þau, eyðileggingarþvottafólkið, buðu okkur að bæta okkur þetta upp með því að bjóða okkur yfir til sín í drykki, vorum við fljót að segja: nei, takk! Við umgöngumst ekki þvottaóþrjóta, he he he ;)
Nú erum við að gera upp við okkur hvort að við eigum að kvarta yfir þeim, eða láta eins og það sé allt í lagi að henda fötunum manns á gólfið fyrir utan, af því að maður heldur að það sé annar dagur, og er ekki nógu gáfaður til þess að kíkja á dagatalið og athuga hvort að maður hafi rétt fyrir sér. Að sjálfsögðu voru þau með góða afstökun eins og allir sem svona hlutir koma fyrir og deildu því með okkur að í þeirra heimabæ væri alltaf verið að stela þvottatímunum þeirra þannig að þau virtust vera vön að henda annarra manna þvotti á gólfið.
Jæja gott fólk, með hverju mælið þið? Á að kvarta undan þeim, eða fara yfir til þeirra í kaffi eða eitthvað sterkara?