Thursday, November 30, 2006

Bíó

Það er skondið með bíó. Við Íslendingar virðumst vilja gæði þegar kemur að bíóum. Allavega eru okkar bíó frekar flott. Að minnsta kosti er það mitt álit. Allavega í samanburði við það sem ég hef upplifað hér í Svíþjóð. Reyndar fórum við í kúlubíó í Stokkhólmi, en það var á Naturhistoriska safninu og telst varla með. Aftur á móti virðast bíóin hérna í Lundi vera með mörgum litlum sölum og reyndar líka einhverjum stórum. Það sem ég tók fyrst eftir var það að það að fara í sal nr. 2 er ekki trygging fyrir því að þú sért að fara í næstbesta salinn. Besti salurinn getur verið nr. 1 og sá næstbesti nr. 7. Við fórum um daginn í sal nr. 2 í SF-Filmstaden. Hljóðgæðin voru hræðileg, salurinn var mjög lítill, sætin voru ekki þægileg og það voru engir glasahaldarar. Hvað á það að þýða að hafa ekki glasahaldara! Hvert á maður að segtja glösin? ;) Svo er mjög erfitt að fá miða um helgar. Það þýðir ekki að mæta á staðinn, ekki einu sinni klukkutíma fyrr ef maður ætlar að fá miða á mynd. A.m.k. ekki ef maður vill sitja með vinum sínum. Það eru nefninlega númeruð sæti, eins og í leikhúsi. Þannig að maður verður eiginlega að kaupa miðann á netinu fyrr um daginn, eða allavega að taka frá miða. Reyndar er frekar dýrt að fara í bíó hérna. Það virðist flest allt vera aðeins ódýrara hérna en heima á Íslandi, en ekki bíó. Það kostar 85 eða 90 sænskar kr. fyrir fullorðna eftir því hvaða mynd það er, held ég. Sem er þá ca. 850 eða 900 kall. Ef ég skil þetta rétt þá kostar 900 kall þegar mydnin er ný, en svo lækki hún. Ég er samt ekki alveg viss ;)
Og hvað á það að þýða að vera svona kurteis að reyna ekki að selja mér meira á meðan að á myndinni stendur! Þ.e. að hafa ekki hlé. Mjög skrítið. Ef maður kaupir sér nefninlega gos áður en myndin byrjar þarf maður alltaf að pissa þegar myndin er hálfnuð. Þ.e. að því gefnu að maður kaupi sér miðstærð eða stórt gos. Þessvegna þarf maður hlé.
Jæja, en nú er kannski komið nóg um bíó. Allavega finnst mér íslensku bíóin sniðugri. Reyndar verð ég nú að viðurkenna að það er líklega skilvirkara að hafa númeruð sæti. Þá þarf ekki alltaf að hafa 1-3 í vinnu á nýjum myndum til þess að þjappa fólki í sætin og koma fleirum fyrir í salina, eins og heima. He he he...

Monday, November 27, 2006

Crash

Við Oddgeir horfðum á Crash í dag. Merkileg mynd, og mjög góð. Sýnir á einstaklega skemmtilegan máta að fólk er fífl! he he he...
En annars fengum við okkur líka rosalega gott nautakjöt í gær, og svo líka í dag. Pakkinn var svo stór að við urðum að borða það tvo daga í röð. Oddgeir er alveg búinn að mastera það að steikja nautakjöt medium-rare ;) Við verðum búin að æfa okkur svo vel á nautakjötinu hérna að það verður allt í lagi að kaupa einstaka sinnum dýra nautakjötið á Íslandi! ;)
Þegar mamma kom um daginn kom hún með gamla góða hjólið mitt með sér. Eins og ég hef áður lýst yfir þá finnst mér þetta leiðinda hjólastand hérna með þessi gömlu hjól sem þarfnast stöðugrar viðgerðar hund-leiðinlegt. Þannig að ég fékk til landsins gamla góða fjallahjólið mitt, sem ég fékk í jólagjöf þegar ég var 12 ára. Rosalega skondið að fá það hingað í Lund vegna þess að eiginlega allir hérna eru á svona bæjar-hjólum, með mjóum stöngum og mjóum dekkjum og afar fáum gírum, ef einhverjum. Ég var bara orðin vön þessu gamla bæjar hjóli sem ég var á. En núna er ég á grófu 18 gíra fjallahjóli, ekta Íslendingur.
En það var komin tími til að skipta. Hjólið sem ég keypti hérna er ca. 10 ára gamalt, en þó svo að gamla fjallahjólið mitt sé líka svona gamalt þá er þetta hjól svona a.m.k. 10 sinnum meira notað. Það byrjaði að skrölta fljótlega eftir að ég fékk það, svo hrundi allt gírasístemið af, brotnaði í heilu lagi. Þannig að ég þurfti að reiða hjólið heim. Ljósin eyðilögðust líka mjög fljólega. En ég keypti ný og Oddgeir lagaði gírasístemið. Við keptum nýtt og ég leigði hjól á meðan það var sett á. Oddgeir gerði tilraun til þess að laga bremsurnar, sem hafa aldrei virkað nógu vel, en það gekk ekki vel. Svo núna er hjólið mitt allt í einu hætt að hjóla! Það hjólar í lausu svona 2-30 hringi áður en það grípur í og byrjar að hjóla. he he he... Það hefði ekki mátt seinna vera að segja bless við það hjól og fá annað. Bless herra mustang-hjól!
Ég mæli með því við alla þá sem ætla erlendis að læra að taka með sér hjól. Það virkar eiginlega ekki að kaupa gamalt. Við Oddgeir erum bæði búin að lenda í vandræðum en samt keyptum við bestu notuðu hjólin sem við fundum innan verðmarka (þ.e. ekki næstum ný hjól). Hafið það í huga....
Kveðja, Sigrún.
Og p.s. Þið eruð velkomin að heimsækja okkur ef ykkur langar. Lítill fugl hvíslaði því að mér að Gunni, Haffi og Eva ásamt kannski fleirum væru að hugsa um að mæta á svæðið. Ég mæli með því að þið kíkið!

Tuesday, November 21, 2006

Mömmudagar

Þá eru mömmudagarnir liðnir í bili. Þær voru hérna báðar í heimsókn mamma mín og mamma hans Oddgeirs. Við fórum saman í Tívolíið í Köpen. Mömmu minni langaði svo að sjá jólatívolíið. Hún var búin að tala um í mörg ár að henni langaði svo að bjóða mér þangað, þannig að þarna kom tækifærið hennar! Við skruppum á afmælisdaginn hennar, 18. nóv, á síðasta laugardag. Ég held að hún hafi haft voða gaman af því, og við öll!
Það voru rosa jólaljós þarna. Við fórum að kvöldi til til þess að sjá sem mest af ljósunum. Ég held að það hafi nú ekki verið nein mistök. Við Oddgeir notuðum að sjálfsögðu líka tækifærið til þess að skreppa í rússíbanan og fallturninn. Svaka stuð! Það er alltaf jafn hræðilegt að fara í þennan fallturn, en algerlega þess virði ;)
Svo bauð mamma okkur út að borða á steikhús Jensens í Köpen. Reyndar var það áður en við fórum í tívolíið, og eftir að við vorum búin að rölta aðeins á Strikinu. Við fengum rosa góðar steikur. Merkilega góður staður.
En svo að sjálfsögðu urðum við að fara með konurnar að versla. Ég held allavega að þær hafi langað til þess, þannig að við skutumst með þær í Nova lund, sem er aðalverslunarmiðstöðin og eina hér í bænum og náttúrulega í dýrlega miðbæinn okkar í Lund. Ég held að við höfum næstum því gert út af við þær af labbi. En vonandi geta þær eitthvað hvílt sig heima á eftir.
þær keyptu sér smá slatta. Ég er að sjálfsögðu með svo góðan smekk að þegar þær sáu hvað ég á flotta dúka og diskamottur sem ég keypti hér urðu þær líka að kaupa svoleiðis. He he he... Svo keyptu þær báðar sér kápur. En að sjálfsögðu þurfti ég líka að sjá kápu í sömu búð sem var svo geðveikt flott að ég varð að fá hana. Hún er reyndar ekki svona fín kápa, eiginlega meira úlpu-kápa, en geðveikt flott samt sem áður. Já, Inga Þórey hún er meira að segja frá Mexx, he he he...
Þannig að ég stóðst ekki freistinguna og keypti mér hana.
Stundum verður maður bara að versla.
En ég held að þær hafi haft það ágætt hérna. Við elduðum góðan mat handa þeim og ég held að þær hafi skemmt sér ágætlega.
Við prufuðum meira að segja dýnuna ykkar Hlynur og Arna og hún er bara allt í lagi. En ég hefði nú ekki nennt að sofa á henni mikið lengur. ;) En takk fyrir lánið!

Tuesday, November 14, 2006

Bænum ykkar hefur verið svarað!

Við komum fyrr heim til Íslands um jólin! ;) Við munum stíga á fagra landið Ísland að kvöldi, eða í kring um miðnætti þann 18. desember. Þannig að við höfum nægan tíma til að hitta ykkur kæru vinir og fjölskylda!!! Og það sem meira er þá verðum við á landinu þangað til 12. janúar. Ef ykkur langar til að hitta okkur á meðan að á dvöl okkar stendur tökum við við tímabókunum á e-mailum okkar: Sigrún - sha1@hi.is og Oddgeir - oddgeir@hi.is

Sunday, November 12, 2006

Gestir, Kaupmannahöfn og Fields - stærsta verslunarmiðstöð Skandinavíu

Við hittum Völu, Raffi og Bjarna (bróðir hennar Völu) í gær. Bjarni bjó hérna í Svíþjóð, ekkert langt í burtu frá okkur, en er að fara heim í dag, þannig að Vala og Raffi voru að heimsækja hann á meðan þau höfðu tækifæri til þess, og ákváðu að heimsækja okkur í leiðinni. Þau buðu okkur með sér til Kaupmannahafnar. Við skelltum okkur með þeim. Þetta var í fyrsta skipti sem við höfum farið á bíl á yfir Öresund-brúnna. Eyddum svo þeim degi í Fields verslunarmiðstöðinni. Við höfðum heyrt að Fields væri stærsta verslunarmiðstöð Evrópu. Þannig að að sjálfsögðu langaði okkur að sjá hana. Jafnvel þó svo að mér þótti nú skrítið að Danmörk af öllum löndum í Evrópu gæti verið með stærstu verslunarmiðstöðina. Bílastæðið var risastórt, og miðstöðin sjálf var þónokkuð stór. Hún virtist ekki vera svo stór, en allar búðirnar vöru mjög stórar, þ.e. náðu mjög langt inn. Þannig að hún var stærri en hún virtist vera þegar maður gekk um ganginn.
Ég ákvað samt að googla - the biggest mall in Europe, og athuga hvað ég myndi finna. Það sem ég fann var: MetroCentre, one of Europe's largest shopping and leisure centres, í Bretlandi, sem annarsstaðar var sögð vera sú stærsta í Evrópu; Cevahir Shopping Mall in Istanbul, the biggest shopping mall in Europe and the second biggest one in the world; Russia's InCity in Europe's largest underground mall í Moskvu. Það sem kemur oftast upp er Cevahir og á eftir því MetroCenter. En aftur á móti fann ég út að Fields er stærsta verslunarmiðstöð Skandinavíu. En það er mjög merkilegt. Ég var nú alveg næstum því farin að halda að það væri rétt að Fields væri stærsta í Evrópu, þegar við vorum á bílastæðinu að minnsta kosti. En þá vitum við það, stærsta verslunarmiðstöð Skandinavíu, hvorki meira né minna, og merkilegt að það sé í Danmörku, en ekki í Noregi eða í Svíþjóð. Danir eru svalir! ;)
En annars var þetta ágætis verslunarferð ég keypti mér peysu sem er að sjálfsögðu mjög flott, og svo keypti ég mér smá föndurdót í Panduro hobby, þeir eru með rosalega flottar perlur og svoleiðis dót til að búa til skartgripi, og svo keyptum við Oddgeir okkur (aðallega Oddgeir) slatta af bjór og tvær beljur af rauðvíni í Bilka. Það er svo miklu ódýrara í Danmörku en í Svíþjóð. He he he ;)
En svo að sjálfsögðu buðum við þeim í mat til okkar. Það verða nú fleiri Íslendingar að bætast í hópinn að fá að berja almennilega augum okkar fallegu íbúð, og bragða á okkar dýrindis matseld!
En þetta var góður dagur og ágætismatur. Takk fyrir daginn Vala, Raffi og Bjarni og góða ferð heim í kvöld!

Tuesday, November 07, 2006

Nýjar myndir!

Hæ hæ,
Við erum búin að setja HELLING af nýjum myndum inn á bloggið okkar! Kíkið bara! Það eru helling af myndum frá Stokkhómi og svo eitthvað af myndum sem við tókum hérna heima í Lundi. Skemmtið ykkur við að skoða þær. Það er linkur inn á myndaalbúmið okkar til hægri á síðunni undir liknum - það sendur myndirnar okkar ;)

Saturday, November 04, 2006

Stokkhólmur

En aðeins um Stokkhólm. Semsagt borgina sem við fórum til á síðustu helgi. Það var rosalega kallt! En samt ekki snjór, eins og var hérna í Lundi í gær og fyrradag, og örugglega í Stokkhómi líka. En það var samt kallt. Líklega samt ekki jafn kallt og á Íslandi. He he he... En ég ætti kannski ekki að hlæja því að þegar við komum hingað fyrir 2 árum held ég, þá var 17 stiga frost. Það verður nú varla svo kallt á Íslandi.
Hér er smá ferðasaga:
En við Oddgeir tókum lest á aðfaranótt föstudagsins til þess að komast til Stokkhólms. Lestin fór kl. 5:30 minnir mig. Þannig að við þurftum að vakna mjög snemma til þess að geta hjólað með allt dótið okkar niður í bæ. Við ákváðum að fara svona snemma, því að það var miklu ódýrara, en kannski ekki sniðugt, því að við sváfum lítið sem ekkert þá nótt. Lestin tók rúmlega 4 klst. Svo þegar við komum til Stokkhólms og vorum búin að finna farfulglaheimilið okkar, sem var gammall bátur, fórum við í Skansen, sem er einskonar húsdýragarður. Þar sáum við norðurlanda-dýr, t.d. uglu, björn, úlf, seli, vísund (vísundur var víst norðurlandadýr fyrir 5000 árum), villisvín, eitthvað skrítið stórt kattdýr og eitthvað fleira. Það var alveg ágætt, en þann dag var bara svo drullukallt og það mikið rok að það var frekar erfitt að hafa regnhlíf, þó að það væri heljarins-rigning.
Svo fórum við á Fridays að borða og fórum snemma að sofa. En við náttúrulega skoðuðum líka aðeins aðal-verslunargöturnar.
Á laugardeginum byrjuðum við á að kaupa skó handa mér af því að ég var að deyja í fótunum á því að labba í nýju flottu leðurstígvélunum mínum. En við höfðum keypt flotta Timberland skó handa Oddgeiri deginum áður, þannig að ég fékk líka svoleiðis. Svo fórum við í kúlubíó, í Naturhistoriska safninu. Bíóið heitir Cosmonova og er rosa flott. Við sáum 3-víddar barna mynd ;) og svo skoðuðum við náttúrulega safnið aðeins, en það er mjög flott.
Svo kom að því að gera það sem við komum til Stokkhólms til að gera - Hitta Ingu og Ragga! Þau hringdu þegar við vorum á safninu, þannig að við drifum okkur niður í bæ til að hitta þau. Að sjálfsögðu röltum við verslunargöturnar með þeim og hjálpuðum þeim að versla, eða hjálpuðum kannski mest lítið, en vorum allavega upp á punt og til skemmtunar!
Um kvöldið átum við eins og um morgunin, McDonalds. Já, hádegismatur og kvöldmatur þar, mjög hollt.
Daginn eftir, á sunnudeginum, fórum við með Ingu og Ragga að skoða höllina og sjá verðina hjá höllini marsera og svoleiðis, og alla túristana troðast. Það var mjög mikil skemmtun.
Svo höfðum við það gott þann daginn. Röltum um gamla bæinn og svoleiðis. Lögðum okkur svo, af því að við Oddgeir höfðum lent í þeirri hræðilegu lífsreynslu að búa með einhverjum í herbergi sem hraut svo hátt að við gátum ekki sofið, og þurftum þessvegna að fara fyrr á fætur en við höfðum vonað. Þetta fyrr á fætur var svona tími þar sem Gunni væri ekki einusinni byrjaður að hugsa um að hann ætti kannski að fara koma sér heim, ég leyfi ykkur að giska hvað klukkan var þegar við fórum útúr herberginu og á röltið :)
En um kvöldið höfðum við það rosalega gott. Við borðuðum á rosalega góðum ítölskum veitingastað í gamla bænum, og fórum svo á hótelið þeirra Ingu og Ragga og héldum áfram að hafa það gott. Það var æði að hitta ykkur!!
Á mánudeginum fórum við Oddgeir svo aftur heim til Lund um kvöldið, en fyst skoðuðum við mannlífið í Stokkhólmi aðeins betur og keyptum okkur hátalara fyrir tölvuna og poppvél. Maður verður nú að geta almennilega horft á video!!!! og svo ekki sé talað um að borða poppkorn!
Og við vorum merkilega fegin að komast heim til Lunds og ná upp svefninum sem við höfðum misst, þó svo að ferðin hafi verið mjög skemmtileg í heildina! ;)

En að öðru og merkilegri hlut!
Í dag gerðist sá merkilegi hlutur að Oggi fór með neðri mörk þyngdar sinnar niður fyrir 3 stafa heiltölu! Já hér er allt að gerast! Ef við förum útí einhverja útreikninga þá tel ég að þessi árangur hafi kostað 250 km á hjólinu í ræktinni og c.a. 15 km hækkun á stigavélinni í ræktinni!
Eins og áður er tekið við sms baráttukveðjum og hamingjuóskum í síma: +46 762 333 217. 

Sigga og Oggi

Nýr póstur! Um próf.

Afsakið hversu lítið hefur verið skrifað hér undanfarið. Ég var að taka próf í gær og reyndi að læra eins mikið og ég gat eftir að við komum heim frá Stokkhólmi, þ.e. þriðjud. til föstudags, og tók svo prófið í gær. Steingleimdi blogginu á meðan. En ég held að það hafi gengið ágætlega. Ég ætti allavega að ná. Prófið var lokapróf í Cognition, þ.e. hugsun og svoleiðis.
Ég lenti samt í smá veseni. Ég mætti aðeins of seint í prófið. Það var svo kallt um morguninn að lásinn á hjólinu var frosinn og við Oddgeir þurftum að spreyja í hann og reyna að losa hann. Svo þegar ég kom í þetta hús þar sem prófið var fann ég ekki stofuna. Ég hafði aldrei komið í þetta hús áður og það var ekkert merkt þarna inni. Þannig að ég kom svona sirka 7 mín. of seint. Svo bað ég um prófið mitt og fékk það á sænsku, en ég hafði beðið um að fá að taka það á ensku. Þannig að ég kallaði aftur í konuna. Hún fór til baka og náði í eitthvað próf, sem einhverjir aðrir voru að taka þarna inni sem var í persónuleikasálfræði og var á ensku. En þá þurfti ég náttúrulega að fara til baka með það próf, af því að það var ekki rétta prófið ;) Þá komst ég að því að annað hvort hefur kennarinn gleymt mér, og gleymt að gera prófið á ensku fyrir mig. Eða þá að hann hefur ætlast til þess að ég myndi lesa spurningarnar á sænsku og leysa prófið á ensku. Því miður er ég ekki alveg nógu góð í sænsku og var náttúrulega ekki með orðabók, þar sem ég bjóst ekki við að vera að taka prófið svona, skildi ég ekki fullkomlega spurningarnar. Ég held að ég hafi skilið þær nógu vel, en það voru alltaf einhver orð sem ég skildi ekki, þannig að kannski hef ég verið að svara einhverju vitlausu. Þannig fór það!!! ;)
En eins og ég segi þá held ég að þetta hafi reddast.
En það var soldið skrítið að taka próf hérna. Prófin eru 5 klst. löng. En maður má mæta klst. eða einni og hálfri klst. of seint, ég man ekki alveg. Þannig að það var stöðugur gangur um stofuna á meðan maður var í prófinu. Þar sem ég mætti of seint þurfti ég líka að sitja við fatahengið, sem var kannski ekki besti staðurinn. Svo er maður í svona risa-stofu, næstum eins og að taka próf í KR-heimilinu eins og hefur stundum verið í Háskólanum núna út af framkvæmdunum.
En prófin eru samt ekki það löng að maður þurfi að vera inni í 5 klst. Prófið byrjaði kl. 8:15 og ég fór út kl. 10:30. Ég var semsagt bara ca. 2 klst. Ok. það hljómar illa! En það var alveg 1/3 farin út á undan mér, eða amk. 1/4 ;) Próftíminn virðist vera þannig að maður eigi alltaf að geta klárað prófið alveg, sama hvað, og meira en það. Mjög skrítið miðað við prófafyrirkomulagið í Háskóla Íslands, og ég held prófafyrirkomulag yfir höfðu á Íslandi.
En nóg um próf... allavega þarf ég ekki að taka annað fyrir jól. Bara lokaverkefni sem ég á að skila í janúar í næsta kúrsi!!!