Bíó
Það er skondið með bíó. Við Íslendingar virðumst vilja gæði þegar kemur að bíóum. Allavega eru okkar bíó frekar flott. Að minnsta kosti er það mitt álit. Allavega í samanburði við það sem ég hef upplifað hér í Svíþjóð. Reyndar fórum við í kúlubíó í Stokkhólmi, en það var á Naturhistoriska safninu og telst varla með. Aftur á móti virðast bíóin hérna í Lundi vera með mörgum litlum sölum og reyndar líka einhverjum stórum. Það sem ég tók fyrst eftir var það að það að fara í sal nr. 2 er ekki trygging fyrir því að þú sért að fara í næstbesta salinn. Besti salurinn getur verið nr. 1 og sá næstbesti nr. 7. Við fórum um daginn í sal nr. 2 í SF-Filmstaden. Hljóðgæðin voru hræðileg, salurinn var mjög lítill, sætin voru ekki þægileg og það voru engir glasahaldarar. Hvað á það að þýða að hafa ekki glasahaldara! Hvert á maður að segtja glösin? ;) Svo er mjög erfitt að fá miða um helgar. Það þýðir ekki að mæta á staðinn, ekki einu sinni klukkutíma fyrr ef maður ætlar að fá miða á mynd. A.m.k. ekki ef maður vill sitja með vinum sínum. Það eru nefninlega númeruð sæti, eins og í leikhúsi. Þannig að maður verður eiginlega að kaupa miðann á netinu fyrr um daginn, eða allavega að taka frá miða. Reyndar er frekar dýrt að fara í bíó hérna. Það virðist flest allt vera aðeins ódýrara hérna en heima á Íslandi, en ekki bíó. Það kostar 85 eða 90 sænskar kr. fyrir fullorðna eftir því hvaða mynd það er, held ég. Sem er þá ca. 850 eða 900 kall. Ef ég skil þetta rétt þá kostar 900 kall þegar mydnin er ný, en svo lækki hún. Ég er samt ekki alveg viss ;)
Og hvað á það að þýða að vera svona kurteis að reyna ekki að selja mér meira á meðan að á myndinni stendur! Þ.e. að hafa ekki hlé. Mjög skrítið. Ef maður kaupir sér nefninlega gos áður en myndin byrjar þarf maður alltaf að pissa þegar myndin er hálfnuð. Þ.e. að því gefnu að maður kaupi sér miðstærð eða stórt gos. Þessvegna þarf maður hlé.
Jæja, en nú er kannski komið nóg um bíó. Allavega finnst mér íslensku bíóin sniðugri. Reyndar verð ég nú að viðurkenna að það er líklega skilvirkara að hafa númeruð sæti. Þá þarf ekki alltaf að hafa 1-3 í vinnu á nýjum myndum til þess að þjappa fólki í sætin og koma fleirum fyrir í salina, eins og heima. He he he...

<< Home