Crash
Við Oddgeir horfðum á Crash í dag. Merkileg mynd, og mjög góð. Sýnir á einstaklega skemmtilegan máta að fólk er fífl! he he he...
En annars fengum við okkur líka rosalega gott nautakjöt í gær, og svo líka í dag. Pakkinn var svo stór að við urðum að borða það tvo daga í röð. Oddgeir er alveg búinn að mastera það að steikja nautakjöt medium-rare ;) Við verðum búin að æfa okkur svo vel á nautakjötinu hérna að það verður allt í lagi að kaupa einstaka sinnum dýra nautakjötið á Íslandi! ;)
Þegar mamma kom um daginn kom hún með gamla góða hjólið mitt með sér. Eins og ég hef áður lýst yfir þá finnst mér þetta leiðinda hjólastand hérna með þessi gömlu hjól sem þarfnast stöðugrar viðgerðar hund-leiðinlegt. Þannig að ég fékk til landsins gamla góða fjallahjólið mitt, sem ég fékk í jólagjöf þegar ég var 12 ára. Rosalega skondið að fá það hingað í Lund vegna þess að eiginlega allir hérna eru á svona bæjar-hjólum, með mjóum stöngum og mjóum dekkjum og afar fáum gírum, ef einhverjum. Ég var bara orðin vön þessu gamla bæjar hjóli sem ég var á. En núna er ég á grófu 18 gíra fjallahjóli, ekta Íslendingur.
En það var komin tími til að skipta. Hjólið sem ég keypti hérna er ca. 10 ára gamalt, en þó svo að gamla fjallahjólið mitt sé líka svona gamalt þá er þetta hjól svona a.m.k. 10 sinnum meira notað. Það byrjaði að skrölta fljótlega eftir að ég fékk það, svo hrundi allt gírasístemið af, brotnaði í heilu lagi. Þannig að ég þurfti að reiða hjólið heim. Ljósin eyðilögðust líka mjög fljólega. En ég keypti ný og Oddgeir lagaði gírasístemið. Við keptum nýtt og ég leigði hjól á meðan það var sett á. Oddgeir gerði tilraun til þess að laga bremsurnar, sem hafa aldrei virkað nógu vel, en það gekk ekki vel. Svo núna er hjólið mitt allt í einu hætt að hjóla! Það hjólar í lausu svona 2-30 hringi áður en það grípur í og byrjar að hjóla. he he he... Það hefði ekki mátt seinna vera að segja bless við það hjól og fá annað. Bless herra mustang-hjól!
Ég mæli með því við alla þá sem ætla erlendis að læra að taka með sér hjól. Það virkar eiginlega ekki að kaupa gamalt. Við Oddgeir erum bæði búin að lenda í vandræðum en samt keyptum við bestu notuðu hjólin sem við fundum innan verðmarka (þ.e. ekki næstum ný hjól). Hafið það í huga....
Kveðja, Sigrún.
Og p.s. Þið eruð velkomin að heimsækja okkur ef ykkur langar. Lítill fugl hvíslaði því að mér að Gunni, Haffi og Eva ásamt kannski fleirum væru að hugsa um að mæta á svæðið. Ég mæli með því að þið kíkið!

<< Home