Mömmudagar
Þá eru mömmudagarnir liðnir í bili. Þær voru hérna báðar í heimsókn mamma mín og mamma hans Oddgeirs. Við fórum saman í Tívolíið í Köpen. Mömmu minni langaði svo að sjá jólatívolíið. Hún var búin að tala um í mörg ár að henni langaði svo að bjóða mér þangað, þannig að þarna kom tækifærið hennar! Við skruppum á afmælisdaginn hennar, 18. nóv, á síðasta laugardag. Ég held að hún hafi haft voða gaman af því, og við öll!
Það voru rosa jólaljós þarna. Við fórum að kvöldi til til þess að sjá sem mest af ljósunum. Ég held að það hafi nú ekki verið nein mistök. Við Oddgeir notuðum að sjálfsögðu líka tækifærið til þess að skreppa í rússíbanan og fallturninn. Svaka stuð! Það er alltaf jafn hræðilegt að fara í þennan fallturn, en algerlega þess virði ;)
Svo bauð mamma okkur út að borða á steikhús Jensens í Köpen. Reyndar var það áður en við fórum í tívolíið, og eftir að við vorum búin að rölta aðeins á Strikinu. Við fengum rosa góðar steikur. Merkilega góður staður.
En svo að sjálfsögðu urðum við að fara með konurnar að versla. Ég held allavega að þær hafi langað til þess, þannig að við skutumst með þær í Nova lund, sem er aðalverslunarmiðstöðin og eina hér í bænum og náttúrulega í dýrlega miðbæinn okkar í Lund. Ég held að við höfum næstum því gert út af við þær af labbi. En vonandi geta þær eitthvað hvílt sig heima á eftir.
þær keyptu sér smá slatta. Ég er að sjálfsögðu með svo góðan smekk að þegar þær sáu hvað ég á flotta dúka og diskamottur sem ég keypti hér urðu þær líka að kaupa svoleiðis. He he he... Svo keyptu þær báðar sér kápur. En að sjálfsögðu þurfti ég líka að sjá kápu í sömu búð sem var svo geðveikt flott að ég varð að fá hana. Hún er reyndar ekki svona fín kápa, eiginlega meira úlpu-kápa, en geðveikt flott samt sem áður. Já, Inga Þórey hún er meira að segja frá Mexx, he he he...
Þannig að ég stóðst ekki freistinguna og keypti mér hana.
Stundum verður maður bara að versla.
En ég held að þær hafi haft það ágætt hérna. Við elduðum góðan mat handa þeim og ég held að þær hafi skemmt sér ágætlega.
Við prufuðum meira að segja dýnuna ykkar Hlynur og Arna og hún er bara allt í lagi. En ég hefði nú ekki nennt að sofa á henni mikið lengur. ;) En takk fyrir lánið!

<< Home