Monday, December 11, 2006

Á bakvið tjöldin


Mér datt í hug að ykkur hefði kannski tekist að sjá veigarnar á bakvið Oddgeir á síðustu mynd. Sérstaklega þar sem Oddgeir benti ykkur á það. Ég ákvað að taka næsta skrefið og sýna ykkur bara nærmynd! En ég læt þær upplýsingar fylgja með að þessar veigar voru keyptar í Danmörku þar sem veigar af þessu kyni eru mun ódýrari þar en hér í Svíþjóð.
Annars verð ég að viðurkenna að mér finnst þessi drykkur ekki mjög góður, og alls ekki svalandi. En það finnst Oddgeiri.
Vill einhver giska á hvað það eru margar dósir í þessum stafla?