Hæ,
langt síðan ég skrifaði eitthvað hér.. ástæðan er líklega sú að allt það skemmtilega gerist fyrir Siggu...
En annars ætlaði ég að segja frá því að ég er búinn að vera einstaklega duglegur undanfarna tvo til þrjá mánuði. Flest haldiði sennilega að ég eigi við skólan.. en nei ekki er það skólinn, held jafnvel að það sé farið að örla aftur á skólaleiða hjá mér.. hugsa ég taki mér frí frá skóla þegar ég hef klárað þrjár annir í viðbót. Líklega er þá löngu kominn tími til að gera eitthvað annað.
Málið er að ég hef verið nokkuð duglegur undanfarna mánuði við að fara í ræktina, og hef ég nú náð þeim árangri að munur á mestu þyngd og minnstu þyngd frá því að ég kom hingað út er 10 kíló! Reyndar má kannski ítreka að þarna er miðað við mesu og minnstu þyngd! En þrátt fyrir það þá er ég mjög stoltur af þessu, enda búið að kosta mig svita og blóð, reyndar óheyrilega mikinn svita, líklega farið að teljast í mörgum tugum lítra. Svo lenti ég í því eittskiptið að ég skar mig pínulítið á vinstri vísifingur.. það blæddi.. smá..
En að tölfræðinnni, enda er ég nú hérna í Svíþjóð til að læra tölfræði..
Vikulega hjóla ég líklega um 200 kílómetra, þ.e. ef ég væri að hjóla utandyra. Og alla þessa kílómetra er ég að hjóla þannig að mótspyrnan á æfingahjólinu er lík því að vera hjóla upp brekku.
Daglega lyfti ég að lágmarki þunga sem nemur um 4.2 tonnum og geri ég það yfirleitt á 20-30 mínótna tímabili. Það gerir að lágmarki um 30 tonn á viku.
Ef við miðum við að árangurinn sé línulega háður tíma og að ég muni vera jafnduglegur næstu 30 mánuðina þá mun ég vera 0 kíló. Sem myndi náttúrulega þíða það að eftir þann tíma, þ.e. þegar ég orðinn mínus kíló, þá gæti ég farið að rukka flugfélögin fyrir að sitja í hjá þeim!
Ég á því miður ekki myndir til að sýna árangur, enda eru fyrir og eftir myndir sem maður sér í blöðunum alltaf dálítið feik. En ég ætla láta aðra mynd í staðinn. Myndin lýsir mér ágætlega þegar ég sit í fyrirlestrum sem eru á sænsku, oft á tíðum mjög leiðinlegum og illskiljanlegum.

Nóg af rugli í bili, tími til kominn að hugsa..
Kveðja,
Oggi

<< Home