Hent út úr herberginu!
Þessa stundina er ég í herberginu mínu. Sem er reyndar eiginlega herbergið hans Oddgeirs núna. Hann tók af mér herbergið mitt ;) Mér var nefninlega hent út úr hinu herberginu! Til þess að Oddgeir gæti talað í símann við mömmu mína. Mig grunar að mamma eigi í vandræðum með að finna jólagjöf handa mér. Sem er eiginlega fyndið af því að það er svo margt sem mig langar í, og svo geðveikt margt sem ég myndi vera ánægð með. En Oddgeir er annað mál. Ekki það að hann myndi ekki vera ánægður með margt. Heldur er svo rosalega erfitt að finna eitthvað handa honum. En ég held að ég sé komin með hugmynd. Nóg um það núna.
Í dag fór ég í Nova Lund. Kringlan okkar hér í Lundi. Ég gerði ekki mjög mikið þar. Keypti bara eiginlega ekki neitt. Bara vítamín. Ég nennti bara ekki að læra. Það er einhvernvegin svo oft margt annað skemmilegra en að læra. Jafnvel þó svo að það þýði að maður hjóli í klukkutíma til þess að snúast í hringi í verslunarmiðstöð virðist það einhvernvegin hljóma betur heldur en að læra.
En ég komst að einu í dag. Danir eru nostalgískir. Margt af því danska sælgæti sem til er í búðunum hérna heitir gammel.. eitthvað eða gammaldags.. eitthvað. Mjög merkilegt ég sá gammeldansk, gammaldags brjóstsykur og gammaldags lakkrís. Þetta er mjög merkilegt. Ætli dönum finnist nútímalegt sælgæti ekki gott???

<< Home