Wednesday, December 13, 2006

Lasin

Hæ hæ. Þannig vildi svo til að ég þurfti endilega að verða lasin, með einhverja leiðinda gubbupest í dag. Ekki er það nú gaman. Akkúrat þegar ég er á fullu í hópverkefni. En þá er það allavega einn enn dagur áður en við komum heim til Íslands yfir jólin, þar sem Sigrún lærir ekkert og tekur ekkert til og kaupir ekki restina af jólagjöfunum. Já, það fer allt að fara til.... Eins gott að ég verði komin í lag á morgun! Langaði bara að deila þessu með ykkur. Ég hafði eiginlega ekki frá neinu meira merkilegu að segja. Ég held að það sé nú ekki rétt hjá Oddgeiri að það gerist meira hjá mér, ég bulla bara meira. he he he....