Sunday, December 17, 2006

Síðasti póstur fyrir jóla-heimferð!

Hæ hæ og hó hó.
Við komum heim til Íslands á morgun, eða annað kvöld. Ég veit að ykkur hlakkar til :)
En í gær rakst ég á flottasta kjól sem ég hef séð í H&M. Við Kati, vinkona mín, vorum staddar þar og við stóðumst ekki freistinguna að prófa að máta hann og taka myndir af okkur. He he he.... Hér er fallegi kjóllinn:


Ég held að ég hafi aldrei séð eins flottan kjól... hmmm... eða ljótan!!! he he he
En það tók ansi margar tilraunir að taka þessa mynd með timer í búningklefanum í H&M! og sérstaklega að takast að taka mynd þar sem maður var ekki að deyja úr hlátri.