Svitinn drýpur af Oddgeiri!
Þetta fína hjól sem þið sjáið hér á myndinni er hjólið hans Oddgeirs. Það er svona í minnsta lagi fyrir hann. Aðallega vegna þess að við gátum ekki hækkað hnakkinn. Þannig að Oddgeir ákvað loksins að kaupa sér nýja stöng eða sadelstolpa, sem myndi geta útlistast sem söðulstólpi. Eftir að hafa keypt sér þann grip ákváðum við, í gær, að setja þennan nýja flotta ,,stólpa" á hjólið. En það var aðeins erfiðara en við héldum. Þannig var að þessi nýji ,,söðulstólpi" er svona a.m.k. 10 sinnum lengri en sá gamli. Þannig að það var enginn hægðarleikur að koma honum fyrir. Við byrjuðum á því að reyna að koma honum fyrir en allt kom fyrir ekki. Þannig að Oddgeiri datt í hug að nota sleypiefni í formi sápu. En það gekk ekki heldur. Það var ekki fyrr en eftir drjúgan einn og hálfan klukkutíma og hálfan brúsa af olíu sem við loksins komum honum á. Þarna sjáið þið hversu mikil áreynsla það var fyrir aumingja Oddgeir að koma honum á. Ef þið skoðið vel bolinn og hárið getið þið séð hversu sveittur hann varð.

<< Home