Friday, September 29, 2006

Í dag....

...fórum ég (Sigrún, ekki eins og Oddgeir sé eitthvað að skrifa á þessa síðu) í verslunarmiðstöðsem ber nafnið Center Syd.
Hún er í Löddeköpinge sem virðist vera eitthvað krummaskuð í áttinaað Gautaborg frá Lundi. Það gekk ekki einu sinni lest þangað, við þurftum að taka einhvern ömurlegan strætó! ;) Það er sko búið að vera að auglýsa þessa verslunarmiðstöð, og ég hélt að hún væri eitthvað rosa flott, þannig að ég dró Oddgeir þangað. Svo var hún bara pínulítið stærri en verslunarmiðstöðin hér í Lundi, Nova Lund. Það eina var að þarna á sama stað voru fínar matvörubúðir og íþrótta-outlet markaður. En þar sem það var íþróttavöru-outlet þarna græddum við aðeins á ferðinni þar sem okkur vantaði einmitt íþróttaföt! ;) Annars erum við ekki búin að gera mikið annað í dag. Við sváfum út og höfðum það gott. Í gærkvöldi var partý hérna í commonroom-inu í litla ,,hverfinu" okkar. Það verður svolítið mikið um svoleiðis þegar margir skiptistúdentar eru saman komnir. Sérstaklega svona margir frakkar. Ég mæli ekki með að búa í návígi við frakka. Því miður ákváðum við að fara út í gær og hitta fólkið, en ég segi því miður vegna þess að þegar leið örlítið á kvöldið voru frakkarnir orðnir ansi drukknir og farnir að klifra uppá þak á einu litlu húsi hérna á lóðinni og klæða sig úr uppi á þaki, og héldu virkilega að við vildum sjá það! Nei takk, ég hef ekki mikinn áhuga á því að sá nokkra frakka bera sig!!! he he he... Meira síðar...

Wednesday, September 27, 2006

Hæ hæ

Ég, Sigrún, er loksins búin að skila inn þessu lokaverkefni mínu, þannig að
vonandi er ég búin með þann kúrs ;) Oddgeir er líka farinn að hressast. Hann er búinn að vera með hálsbólgu og kvef. Ekki gaman af því, þegar það er búið að vera að mestu leyti í kring um 20 stiga hiti. En reyndar er loftið hérna mjög rakt. Gæti haft eitthvað með það að gera. Þegar við þvoum fötin okkar reynum við að setja sem mest í þurkarann. Það sem við setjum ekki í þurkarann er að minnsta kosti 3 - 4 daga að þorna, inni. Mjög skrítið!
En sólin er farin í bili! :-( Það var búið að vera skólskin í marga marga daga, en núna er aftur farið að rigna - og það verður sko rigning hérna. það er sko engin Íslands-rigning, heldur meira eins og Spánar-rigning, eða kannski Amason-rigning (eða núna er ég kannski aðeins að ýkja, en hún verður oft mjög mikil). Við skulum vona að það verði ekki svoleiðis lengi...
Heyrumst seinna.

Tuesday, September 26, 2006


Þetta er mynd af Oddgeiri að borða fína, góða nautakjötið sem við elduðum okkur um daginn, í fína, góða eldhúsinu okkar. Nammimamm...

Monday, September 25, 2006

hej

Við ætluðum bara rétt að láta ykkur vita að það er komin myndasíða þar sem þið getið skoðað myndirnar okkar. Reyndar eru ekki komnar margar myndir frá Svíþjóð ennþá, en þetta er allavega smá byrjun. Koma fleiri aðeins seinna! ;)

Sunday, September 24, 2006

Góðan daginn!

Þessi menningarnótt Lundar var aðeins öðruvísi en menningarnóttin heima. 
Hérna gekk allt mest út á að hafa það rólegt og þægilegt - og borða. Það var matur allsstaðar. 
Veitingastaðirnir með borðin úti og líka matsölur á torgunum. En flest allt virtist vera úti.
Svo voru náttúrulega einhverjar hljómsveitir. 
Við sáum aðal lúðrasveit bæjarins með svaka show í AF building. Þetta er stuð-sveit. Allir klæddir í hvítt að ofan og rauðar hnébuxur. Svo er svaka stuð á þeim. Þau eru meira að segja með klappstírur sem dansa með pom-poms á meðan þau eru að spila ;) En við sáum líka stjörnur. Við vorum of sein að fá aðal-sýninguna í Planiterium. En við fengum bara betra - barnasýningu í uppblásnu kúlu tjaldi. Það var alveg dimmt inni í tjaldinu og svo var stjörnufræðingur með lampa sem sýndi allar stjörnurnar og sagði á smá barnamáli frá. 
Ég ætla líka að segja ykkur frá einu - það er ógeðslega mikið af sniglum hérna þegar það rignir.
Það er ógeðslegt! Þeir eru geðveikt slímugir og stórir. Ojjj.. Sem betur fer er ekki búið að rigna mikið síðustu 2 vikurnar. En svo eru broddgeltir hérna. Oddgeir sá einn áður en að ég, Sigrún, kom. Svo sá ég einn um daginn. En hann var dauður - og kraminn við götuna. Æ, æ, aumingja hann... En svo þegar það kemur myrkur á nóttunni þá fer maður að sjá alla froskana.
Þeir eru flestir mjög litlir, en við sáum einn frekar stóran um daginn. Svo höfum við líka séð kanínu, en þær eru nú ekki mjög merkilegar. Annars er maður nú hættur að sjá þær í Öskjuhlíðinni heima ;)
Svo er rosalega mikið, og já, ég meina rosalega mikið, af geitungum hérna. Þeir eru margfalt fleiri
en á Íslandi. Sem betur fer, að því leitinu til, er farið að kólna aðeins hérna þannig að þeim er
aðeins farið að fækka. Fólkinu hérna er alveg sama um þá. Þeir setjast á þau og þau bara blása þeim í burtu eða ýta aðeins við þeim. Alveg merkilegt að vera ekki hræddur við geitunga!
En það eru líka ennþá stærri flugur hérna, einhverskonar drekaflugur eða eitthvað svoleiðis. Annars hef ég ekki hugmynd um hvað þetta heitir. Þær eru grænleitar og RISA stórar og langar.
Mjög flottar úr fjarlægð, en hræðilegt þegar þær koma of nálægt. En þær eru líka ekkert mjög vanalegar. En gaman að vera búin að fræða ykkur um dýraríkið hérna. Vonandi hafið þið haft gaman af. Ég ætla núna að fara að halda áfram að skrifa aðeins í ritgerðinni minni áður en
Oddgeir vaknar.
Bæ í bili.
 

Saturday, September 23, 2006

hæ hæ gott fólk

Arg, ég, Sigrún, var búin að skrifa einn góðan póst fyrir ykkur og það datt svo 
allt út!  En ég ætla að reyna að gera nýjan í staðinn.
Við Oddgeir erum búin að læra í allan dag, þrátt fyrir að það sé laugardagur. Þið gætuð meira að segja farið að halda að við séum dugleg! Fyrsta önnin af 4 er að klárast þannig að við þurfum að skila inn verkefnum. Oddgeir er búin að vera að gera hópverkefni (gruppövning) og ég er búin að vera að gera ritgerð (hemskrivning). Sem betur fer getum við unnið þetta á ensku, þar sem að sænskan er ekki alveg komin í nægilega gott stand til þess að hægt sé að skrifa ritgerðir og þessháttar án mikilla málfræði og orðavillna ;)
Í kvöld er kulturnatt í Lund (eða menningarnótt). Það er víst nóg um að vera. Allir niðri í miðbænum og svaka gaman. Hver veit nema við kíkjum þangað og reynum að finna eitthvað skemmtilegt að gera. Ég hef ekki hugmynd um hvort að þetta sé eitthvað svipað og heima í Reykjavík, en það er allavega heljarinnar dagskrá. Meira að segja hægt að fara í stjörnuskoðun!
Svo náttúrulega þetta venjulega, hljómsveitir og svoleiðis.
Í gærkvöldi borðuðum við kvöldmat með Kati vinkonu okkar. Hún kemur frá Austurríki og býr á sama svæði og við. Næstum því bara í næsta húsi. Það var rosa gaman hjá okkur fyrir utan það að ÉG þurfti að hlaupa í þvottahúsið alltaf af og til vegna þess að þetta var eini tíminn, eftir 2 vikna bið sem við gátum fengið þvottatíma. Stundum er alveg agalegt að fá þvottatíma hérna, þar er gjörsamlega allt orðið skítugt þegar maður getur loksins þvegið eitthvað, og þá er ekki einu sinni víst að maður fái nægan tíma til að þvo allt. Við fórum og töluðum við skólan út af þessu hvort að það væri ekki hægt að gera eitthvað. Hvort að við gætum t.d. fengið tvo þvottalykla til þess að panta þvottatíma, þar sem við erum nú tvö. En við fengum bara svarið: ,,life is not always fair" og þannig endaði það samtal! Ótrúlegt hvað margir hérna eru ósveigjanlegir. Meira en á Íslandi ;)
En jæja, við verðum að fara að gera eitthvað skemmtilegt núna. Það er komin tími til.
Meira síðar.

Saturday, September 16, 2006

Hej allihopa,
Við erum búin að vera rosa dugleg að læra í dag. Vi har vårit jätte dugtiga att plugga (við ábyrgjumst ekki að þetta hafi verið rétt). Við vorum svo heppin að fá heimsókn fyrir nokkrum dögum, Hlyn og Örnu, og að sjálfsögðu nenntum við ekki að læra mikið á meðan. Miklu skemmtilegra að skoða sig um og gera eitthvað skemmtilegt. Við fórum t.d. í tívolíið. Við fórum í nýja tækið himmel-eitthvað. En það var ekkert svo skemmtilegt. Að sjálfsögðu fórum við líka í turninn, hann er alltaf skemmtilegur. En mikið ógeðslega fer hann hátt!
Við erum bara búin að hafa það frekar rólegt núna um helgina, allavega í gær og í dag. Við leigðum okkur sænskar myndir í gær. Já, merkilegt nokk, þá bara skildum við heilann helling af þessari mynd sem við horfðum á í gær! Það er kannski eitthvað af þessu máli að síast inn. Gaman að segja ykkur frá því að það virðist vera standardinn hérna að leigja myndir í 7 daga, en ekki bara einn. Það er samt hægt að leigja í einn. En þegar við leigðum þessar 3 gömlu, sæsku myndir vorum við ekki einu sinni spurð hvað við vildum leigja þær lengi. Gamlar myndir eru víst bara leigðar í 7 daga. En kosta náttúrulega það sama og að leigja gamla mynd heima í einn dag, held ég allavega... 20 kr. sænskar (200 kr. ísl.). Já, það er alltaf gaman að spá í því hvað hlutirnir heima kosta. Yfirleitt verður maður mjög ánægður yfir því að vera hér.
En nú þurfum við að halda áfram að læra. Fleiri fréttir síðar.

Hej då.


 

Friday, September 15, 2006

Til hamingju!

Til hamingju allir okkar kæru vinir! Við erum loksins komin með blogg þar sem 
þið getið nú fylgst með ferðum okkar og gjörðum í Svíþjóð. En það veltur að 
sjálfsögðu allt á því hversu dugleg við erum við að skrifa inn á þetta! Hehe..
Jæja, þetta er nú allt og sumt núna, meira næst. 
Og nú hugsa allir, úfff... þetta byrjar ekki vel! 
Kveðja frá Svíþjóð.