Ogga blogg
Já ég veit að ég er orðinn spenntur að koma heima til Íslands! Og líka að að labba útúr prófinu á morgun.. það er sko alveg pottþétt að ég mun fá mér öllara eftir þessa önn! Alveg ótrúlegt hvað höfuðið á mér hefur lært mikla tölfræði undanfarna daga.. bara að vona að þetta sé næg tölfræði sem ég hef lært! En það kemur í ljós í fyrramálið ;) Á bara eftir að lesa í svona 1-2 tíma í viðbót og svo get ég fengið mér 4-5 tíma svefn fyrir prófið! Mætti halda að maður sé að verða stressaður fyrir próf svona í lokinn á skólaprófaferli manns, en treystið því að svo er ekki! Ekki til stress í Ogga! Ég er svo afslappaður að ég er ekki einusinni byrjaður að pakka fyrir heimferðina!
En að öðru, um daginn þegar ég var í friðlýsta herberginu og var að dunda mér við að gera Suduko þraut lenti ég í mjög svo óvenjulegri þraut! Þrautin var bara virkilega erfið og þurfti ég nokkrar heimsóknir í friðlýsta herbergið áður en þrautin var leyst. Kannski hef ég bara ekki verið rétt motiveraður fyrir þessa tilteknu þraut, en ég ætla setja hana hérna inná bloggið þannig að þið getið dundað ykkur við hana. Stefni á að koma henni hingað inn fljótlega eftir að ég kem til Íslands.
Að lokum vill ég óska mér góðs gengis í prófinu í fyrramálið og góðrar flugferðar heim!
Takk fyrir lesninguna,
Oggi

