Alvaran kallar...
Nú erum við næstum því búin að koma okkur aftur fyrir hér í Lundi eftir jólafríið. Allt er að komast aftur í sínar gömlu föstu skorður, t.d. kíkir Oddgeir á veðurfréttirnar 5 sinnum á dag. Skólinn er að byrja hjá okkur. Ég er búin að fara í kynningartíma í íþróttasálfræðinni og er að fara í kynningartíma í samanburðar-evrópu-réttarsögunni í fyrramálið. Þetta verður allt saman mjög spennandi. Að fá að fara í flotta lögfræðihúsið...
Við fengum gesti með okkur til Lunds í 4 daga, eða 4,5 (eða eitthvað svoleiðis). Haffi, Eva, Gunni og Heiða sváfu á gólfinu hjá okkur á vindsængum. Við kíktum með þeim til Helsingborg á innibandýleik - hvað annað - og að sjálfsögðu kíktum við aðeins á þá borg í leiðinni. Daginn sem þau komu fórum við á Carlsberg safnið í Köben. Það var nú lítið merkilegt. Það eina sem var merkilegt var að við fengum að smakka 2 tegundir af bjór. Gott fyrir þá sem fíla bjór. En svo fórum við út að borða á Reef n Beef, sem er ástralskur veitingastaður, einnig í Köben, sem selur m.a. krókódílakjöt og kengúrukjöt. Við stelpurnar fengum okkur allar The hunted hunter, sem þið getið giskað á hvað var. Oddgeir gæddi sér á kengúru sem var svo skolað niður með rauðvíni sem bragðaðist næstum því eins og hvítvín. Þetta var í annað skiptið okkar Oddgeirs sem við förum á þennan veitingastað. Oddgeir hafði áður fengið sér krókódíl, sem var það sem ég fékk mér núna, ef þið höfðuð ekki áttað ykkur á því, og þá fékk ég mér emufugl, sem er einhver skrítinn stór fugl sem kann ekki að fljúga. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, svo framarlega sem það er innan skynsamlegra marka. Ég hleypi ekki sniglum inn fyrir mínar varir. Þeir eru bara svo slímugir og ógeðslegir. Ég held að það séu ekki til ógeðslegri dýr á jarðríkinu. En ég ætla að leyfa ykkur að dæma um það fyrir ykkur sjálf.

<< Home