Jibbí - nýr póstur!!!
Ég er komin með samviskubit að hafa ekkert bloggað, þannig að hér kemur einn póstur. Við Oddgeir erum svo til nýkomin heim frá Póllandi. Við skelltum okkur til Gdansk þann 11. mars og komum til baka til Köben þann 20. mars. Við gistum á voðalega kósí litlu hóteli sem heitir Villa Isabel. Þetta var greinilega fjölskyldu-business. Það eru 7 herbergi á hótelinu og það virtist vera aðallega fjölskyldan sem afgreiddi okkur. Þetta var eins og lítill kastali og allt í voða antikstíl. Hótelið var rétt við gamla bæinn, þannig að við skoðuðum hann nokkuð vel. Helling af eld-gömlum og rosa flottum húsum, og geðveikt margar kirkjur. Það var geðveikt ódýrt að borða á veitingastað þarna. Við fórum m.a. á einn Gdanska, túrista-veitingastað, sem er frekar flottur en troðinn af dóti. Það gefur sko því að vera troðið af dóti nýja merkingu. Það var víst einhver ríkur kall sem keypti eiginlega alla verðmæta antíkmuni á svæðinu og opnaði þennan veitingastað með þeim öllum troðnum saman í. Þar borguðum við reyndar alveg 100 pólskar, sem er alveg 2.300 kall, óvenjulega mikið ha???
En svo skoðuðum við líka nokkrar af verslunarmiðstöðunum þeirra. Það er rosalegur uppgangur í landinu, þannig að hvað byggja þeir - auðvitað verslunarmiðstöðvar! Við versluðum nú samt ekki mikið, en smá. Verðlagið á þessum merkjafötum var alveg svipað og hér í Svíþjóð. Sem er nú náttúrulega minna en á Íslandi. he he he... En við fórum í eina al-pólska "verslunarmiðstöð". Þetta leit út eins og ein af þessum iðnaðargötum í niðurnýslu. Það voru nokkur hús í götunni, öll 2 hæða, að mig minnir, og hrá að innan. Þegar við gengum inn í húsin var það einskonar Kolaports-fílingur. Nema í hverju herbergi í húsunum var einn söluaðili með allskyns föt, töskur eða snyrtivörur - og sko oftast eitt eða tvennt af hverju. En reyndar voru þetta ekki notuð föt, greinilega bara samansafn af gömlum lagerum. Okkur var sagt að þarna versli margir Pólverjar á sig fatnað. En við fundum ekki neitt, eins og við var að búast. Við gáfumst reyndar upp eftir 2 hús ;)
En við fundum geðveikt flotta útivistarbúð, þar sem við gátum keypt þunna göngusokka á 300 kall íslenskar, mjög gott verð. Þannig að við keyptum að sjálfsögðu svoleiðis, og Oddgeir varð náttúrulega líka að kaupa sér veiðihjól og veiðihatt, he he he... En í staðinn fékk ég að kaupa mér nýja spariskó í annari búð að sjálfsögðu.
En nóg um búðarráp. Við skoðuðum að sjálfsögðu líka Gdyniu og Sopot. En þær tvær ásamt Gdansk mynda tri-city. Sopot er túristaparadísin, með hvítri strönd, skemmtilegri göngugötu og þar er hægt að finna sér Spa og flott hótel. En það var ekki nægilega gott veður fyrir strandarferð hjá okkur. En við gengum nú samt eftir löngu bryggjunni þeirra, og göngugötunni og fengum okkur köku á einu kaffihúsinu.
Ég verð að hryggja ykkur með því að við fórum ekki að skoða neitt safn. En við fórum samt sem áður að skoða freedom sýninguna þeirra, sem er utanhúss í Gdansk. Þar sem við sáum gamlar myndir, skúlptúra og part úr Berlínarmúrnum, ásamt mynd af þeim sem stóðu í röð við hann til þess að verða skotnir. Ekki mjög fallegt það.
En allt í allt var þetta mjög skemmtileg ferð hjá okkur.
Svo er gaman að segja ykkur frá því að þann 29. mars, þ.e. á næsta fimmtudag koma Hörður og Herdís í heimsókn til okkar. Alltaf gaman að fá skemmtilegt fólk í heimsókn!
En ég kveð þar til næst - og við skulum vona að það verði ekki langt þangað til það verður!
