Sunday, October 01, 2006

Þrumur og eldingar

Það virðst vera ansi oft þrumur og eldingar á þessum slóðum, og Oddgeir er að fíla það! Hann hleypur annað hvort út í glugga þegar það byrjar, eða alveg út og stendur þar til að reyna að sjá sem mest ;) Fyrir nokkrum dögum byrjaði þrumuveður þegar við vorum á leiðinni heim á hjólunum okkar. Það kom bara allt í einu og það var mjög nálægt. Ég, Sigrún, varð ansi hrædd þegar það kom elding, teiknimyndaelding (þ.e. maður sá eins og í teiknimyndunum) og ég náði ekki að telja upp á einum þangað til þruman kom, og hún var hávær. Eldingin virtist hafa komið í blokkina fyrir framan okkur eða allavega rétt hjá henni. Ég hjólaði mjög hratt heim, næstum því kjökrandi ;)
Svo í gærkvöldi kom aftur mikið þrumuveður. Við vorum á leiðinni út í búð, en hættum við í bili. það var náttúrulega brjáluð rigning og mjög háværar þrumur. Oddgeir stóð úti í öruggle klukkutíma að skoða eldingarnar. Ég stóð úti í svona 15-20 mín. Bara til að telja hvort eldingarnar væru nokkuð nálægt. Sem betur fer voru þær a.m.k. 2-3 km. í burtu þegar þær voru næst okkur. Svo fór ég inn að horfa á Smallville, eins og maður á að gera þegar það er brjáluð rigning og þrumuveður, þ.e. horfa á video, en Oddgeir stóð úti. he he he... Hann er orðinn þrumu-óður....