Höfuðborgin
Kæru lesendur!
Mér hryggir rosalega að segja ykkur að ekki verður bloggað á þessa síðu á komandi helgi! En örvæntið ekki það ætti að vera hægt að fá hrygg í næstu Nóatúns verslun.
Ástæða þessa að ekki verður bloggað um næstu helgi er að ég og Sigga höfum ákveðið að leita eftir stofu 7913 í höfuðborg Ríkisstjórnarhneykslislandi. En mér hefur verið sagt að rekja meigi hneykslismál stjórnarinnar til einhvers sálms sem ku hafa verið kyrjaður í umræddri stofu. Hefur nú áhugi minn vaknað á því hvort ekki sé hægt að nýta þennan sálm til að velta ríkisstjórnum sem ekki virða rétta náungans úr sessi.
Á ferðalagi þessu mun ég eftir bestu getu reyna að mynda eins mikið og myrkrið leyfir í umræddri borg og notfæra mér svo nýfundna reynslu mín og kyrja einhverjar myndir inn á myndasíðuna sem tilheyra á þessarri síðu.
En að öðru og mikilvægara málefni!
Eins og fram hefur komið í pósti frá Siggu þá stendur yfir mikið heilsuátak hjá undirrituðum, en ætlunin er að koma sér í gott form fyrir jólasteikurnar sem fjölskyldur okkar ætla bjóða okkur í, (Inga systir ég er ennþá að bíða eftir matarboðinu þann 26 des!)
Mun ég koma með að tilkynna ykkur um árangursáfanga mína um leið og þeir sjást eða mælast!
Tekið verður við baráttukveðjum, hvenær sem er, og hamingjuóskum, þegar við á, í síma +46 762 333 217 en það ku vera mitt sænska gsm símanúmer.
Og að lokum vill ég spyrja ykkur tveggja spurninga:
1. Hvað heitir höfuðborgin?
2. Hvaða kallast Ríkisstjórnarhneykslisland í daglegu tali, (að undanskyldum síðastliðnum mánuði)?
Kveðja,Oggi

<< Home