Nú er illt í efni
Já, nú er illt í efni. Faðir minn (Sigrúnar auðvitað) er hættur að vilja tala við mig. Ég var að tala við hann í símann í gær og hann vildi ekkert hlusta á það sem ég var að segja honum. Hann bað bara um að fá að tala við Oddgeir! Er Oddgeir sonur hans? Nei. Hann var víst að kaupa sér nýjan mótordreka, en hann vildi ekkert segja mér það. Það er ekkert gaman. Betra að segja Oddgeiri það, þó svo að ég hafi líka gaman af því að heyra um svif-dótið hans pabba. Já, ég er alveg hreint móðguð... ;)

<< Home