Saturday, October 21, 2006

Íkornar

Ég man eftir einni setningu sem ég var ekki sammála í Sex and the city þætti. Carry sagði: ,,Squirrels are only rats with cuter outfits". Þessu get ég ekki alveg verið sammála. Ég neita því ekki að hægt er að líta á íkorna sem meindýr. En þeir eru bara svo miklar dúllur.
Ég sá minn fyrsta íkorna, síðan ég kom hingað, í gær. Hann var geðveikt sætur. Greyið litla var að hlaupa yfir umferðargötuna. Sem betur fer varð hann ekki fyrir bíl í þetta skiptið.
Hugsið ykkur rottu að hlaupa yfir götu, ojjjj... Maður myndi ekki vera fegin ef hún myndi ekki lenda fyrir bíl, ekki það að ég myndi vera fegin ef hún myndi lenda fyrir honum, en mér væri frekar sama.
Svo eru mýs. Þær eru nú litlar og svolítið sætar. Ég get nú ekki neitað því. En þær minna bara svo hrikalega mikið á rottur, þannig að einhverra hluta vegna verða þær ekki eins sætar fyrir vikið.
Ég bara sé ekkert mikið sameiginlegt með rottum og íkornum. Lengi lifi íkornar!!!