Heimsókn nr. 2
Á laugardagskvöldið skelltum við Oddgeir okkur í heimsókn nr. 2 á slysó/læknavaktina hérna. Svaka stuð. Í fyrra skiptið sem við fórum eyddum við föstudagskvöldi í það, ca. 3 klst. bið. Þá datt Oddgeir af hjólinu sínu. Eiginlega flaug frekar, beint yfir framhjólið og stýrið og á götuna. Þannig að við skelltum okkur á slysó að láta tékka á þessu. Hann brákaði rifbein, hrakfallabálkurinn. En nú er það allt batnað.
En okkur fannst þetta svo skemmtilegt, að eyða svona helgar-kvöldi á slysó, að ég fékk blöðrubólgu á laugardaginn. Og viti menn - við eyddum laugardagskvöldinu á slysó. Þeir eru nefninlega ekki með læknavakt eins og í Reykjavík. Heldur tekur slysó við öllum. Þannig að ég lenti náttúrulega í engum forgangi og þurfti að bíða í rúmlega 3 klst.
Skemmtilegt að eyða helgunum sínum svona. Af hverju gerast svona hlutir ekki á virkum dögum á milli kl. 8 og 10 á morgnanna, þegar heilsugæslan er með opna tíma?

<< Home