Monday, October 09, 2006

Film-café

Og ef þið viljið vita meira um það hvað ég gerði í gær, þá fór ég á film-café. Það er eitt nation-ið hérna, þ.e. einskonar nemendafélög, sydskånska nation (reyndar ekki mitt nation), sem sýnir mynd og selur kaffi, te, kökur og brauð með því á sunnudagskvöldum. Mjög næs. Ég skellti mér með Kati og 2 finnum á meðan Oddgeir var að læra, he he he... Hann er að gera eitthvað heimaverkefni og lenti í hóp með einhverjum sem virðist skilja minna en hann (allir að taka smá stund og vorkenna Oddgeiri). Ekki allir jafn heppnir og ég að vera að læra sálfræði hér. En ég hafði það gaman. Við sáum Kiss kiss bang bang. Hún er alveg nokkuð góð. Soldið flókin, og þar sem gæðin voru ekki upp á neitt svo marga fiska (kannski 3 af 5), myndin fraus sko nokkrum sinnum, (okey, kannski 2 af 5 fiskum) þá skildi ég ekki alveg plottið. En ég mæli samt með henni. En ég mæli aftur á móti ekki með lemon-squares, sem var kakan sem ég fékk, hún var ekkert svo góð.