Monday, October 09, 2006

Aerobic

Hafið þið einhverntíman prófað Aerobic? Það er nú alveg brandari. Ég (Sigrún, ef ég þarf að segja ykkur það) ákvað að prófa það í fyrsta skipti í gær. En það byrjaði ekki vel. Það eru fleiri en Oddgeir sem villast á stofum, því að ég fór í vitlausan sal í gær. Það voru eitthvað ískyggilega fáir í þessum sal, og upphitunin var ískyggilega létt. Það var líka eitthvað skrítið að karlinn sem var að stjórna var mjög spes, mjög stór og með stóra bumbu. Svo fór hann að gera einhver spörk og fór að boxa með höndunum. Mér fór ekki að lítast á blikuna, og leit í kringum mig og sá að þeir sem voru í salnum voru flestir með einhverja bláa litla búða með sér og nokkrir box hanska. Æ, æ, þá var ég fljót að hlaupa út...
...og stakk mér inn í næsta sal, hann var fullur af fólki (en það var réttur salur). Mest náttúrulega af stelpum, en líka nokkrir strákar. En allir virtust hafa verið þarna oft áður, því að allir kunnu sporin, nema ég. Ég hoppaði og sneri mér alltaf svona 3 sek. á eftir öllum öðrum, og þegar allir fóru til vinstri fór ég stundum óvart til hægri. Já, það er greinilegt að á meðan ég hef verið að liggja upp í sófa, borða nammi og horfa á video í Lundi hafa aðrir verið að fara í aerobic tíma! ;) Nei, ég er nú að ýkja því að ég er ekki bara búin að liggja uppi í sófa, heldur er ég nú búin að mæta nokkrum sinnum í yoga og að lyfta, þ.e. þetta rólega. Ég er kannski bara ekki alveg þessi stuð-aerobic týpa. Ég er samt að spá í að prófa að mæta í latin-aerobic í kvöld, það á víst að vera meiri dans, en einhver hopp og stuð-pop spor ;) Ég læt ykkur vita hvernig það gengur, hvort sem þið hafið áhuga á því að vita það eða ekki. He he he...