Friday, October 06, 2006

Lab

Í dag var ég í lab tíma, ávalt mjög skemmtilegt að vera í labi. En í dag viltist ég í annað lab en ég átti að vera í. Það var alveg ágætt þangað til að ég las upp heitið á þeim tíma, en það var: Darklab! Jújú allt í lagi með það svosem..þangað til.. að ég leit í kringum mig og sá að það voru eingöngu svarthærðar stelpur með oddmjóa hata í þessum lab tíma! Á þessum tímapunkti hugsaði ég: "er ég nokkuð að villast á stofum?" ég náði varla að hugsa spurningamerkið þegar inn gekk hlæjandi kona. Svo heppilega vildi til að ég var að taka minnispunkta í þann mund sem konan gekk inn og náði ég því einnig hlátrinum. Mæli ég með því að þið hlustið á hláturinn, því eftir þetta þá varð mín stutta reynsla í þessum lab tíma ívið furðulegri.
En stuttu eftir að konan kom inn fóru allar stelpunar að kyrja eitthvað óskiljanlegt muldur, ég reyndi að taka þátt en um leið og ég byrjaði að muldra fóru ljósin að blikka og hurðir að skellast. Ég ákvað því að sitja hjá í þetta skiptið og reyna finna eitthvað í kennslubókinni sem gæti útskýrt hvernig þetta alltsaman gæti tengst stafrænum samskiptaaðferðum, eftir að hafa blaðað í gegnum bókinna og ekki fundið neitt ákvað ég að athuga hvort ég væri örugglega í réttri stofu. Ég gekk útúr stofunni og sá þá að ég var í stofu 7913 en ekki 4119 eins og ég átti að vera í, í þeirri andrá sem ég áttaði mig á þessu sá ég hvítan blossa koma úr stofunni, það næsta sem ég man var að ég var í stofu 4119 og kennarinn var að spyrja mig hverja villulíkurnar eru að ef sent er merki m=m1 og móttakarinn skilar merkinu m0!

Já ég get bara sagt eftirfarandi um þessa lífsreynslu: Svíar, þeir eru klikkaðir!

Á mánudaginn ætla ég að reyna finna þessa stofu aftur og reyna komast að því hvaða kúrs þetta var, gæti komið að góðum notum í framtíðinni að kunna þetta muldur sem þær fóru með!