Stokkhólmur
En aðeins um Stokkhólm. Semsagt borgina sem við fórum til á síðustu helgi. Það var rosalega kallt! En samt ekki snjór, eins og var hérna í Lundi í gær og fyrradag, og örugglega í Stokkhómi líka. En það var samt kallt. Líklega samt ekki jafn kallt og á Íslandi. He he he... En ég ætti kannski ekki að hlæja því að þegar við komum hingað fyrir 2 árum held ég, þá var 17 stiga frost. Það verður nú varla svo kallt á Íslandi.
Hér er smá ferðasaga:
En við Oddgeir tókum lest á aðfaranótt föstudagsins til þess að komast til Stokkhólms. Lestin fór kl. 5:30 minnir mig. Þannig að við þurftum að vakna mjög snemma til þess að geta hjólað með allt dótið okkar niður í bæ. Við ákváðum að fara svona snemma, því að það var miklu ódýrara, en kannski ekki sniðugt, því að við sváfum lítið sem ekkert þá nótt. Lestin tók rúmlega 4 klst. Svo þegar við komum til Stokkhólms og vorum búin að finna farfulglaheimilið okkar, sem var gammall bátur, fórum við í Skansen, sem er einskonar húsdýragarður. Þar sáum við norðurlanda-dýr, t.d. uglu, björn, úlf, seli, vísund (vísundur var víst norðurlandadýr fyrir 5000 árum), villisvín, eitthvað skrítið stórt kattdýr og eitthvað fleira. Það var alveg ágætt, en þann dag var bara svo drullukallt og það mikið rok að það var frekar erfitt að hafa regnhlíf, þó að það væri heljarins-rigning.
Svo fórum við á Fridays að borða og fórum snemma að sofa. En við náttúrulega skoðuðum líka aðeins aðal-verslunargöturnar.
Á laugardeginum byrjuðum við á að kaupa skó handa mér af því að ég var að deyja í fótunum á því að labba í nýju flottu leðurstígvélunum mínum. En við höfðum keypt flotta Timberland skó handa Oddgeiri deginum áður, þannig að ég fékk líka svoleiðis. Svo fórum við í kúlubíó, í Naturhistoriska safninu. Bíóið heitir Cosmonova og er rosa flott. Við sáum 3-víddar barna mynd ;) og svo skoðuðum við náttúrulega safnið aðeins, en það er mjög flott.
Svo kom að því að gera það sem við komum til Stokkhólms til að gera - Hitta Ingu og Ragga! Þau hringdu þegar við vorum á safninu, þannig að við drifum okkur niður í bæ til að hitta þau. Að sjálfsögðu röltum við verslunargöturnar með þeim og hjálpuðum þeim að versla, eða hjálpuðum kannski mest lítið, en vorum allavega upp á punt og til skemmtunar!
Um kvöldið átum við eins og um morgunin, McDonalds. Já, hádegismatur og kvöldmatur þar, mjög hollt.
Daginn eftir, á sunnudeginum, fórum við með Ingu og Ragga að skoða höllina og sjá verðina hjá höllini marsera og svoleiðis, og alla túristana troðast. Það var mjög mikil skemmtun.
Svo höfðum við það gott þann daginn. Röltum um gamla bæinn og svoleiðis. Lögðum okkur svo, af því að við Oddgeir höfðum lent í þeirri hræðilegu lífsreynslu að búa með einhverjum í herbergi sem hraut svo hátt að við gátum ekki sofið, og þurftum þessvegna að fara fyrr á fætur en við höfðum vonað. Þetta fyrr á fætur var svona tími þar sem Gunni væri ekki einusinni byrjaður að hugsa um að hann ætti kannski að fara koma sér heim, ég leyfi ykkur að giska hvað klukkan var þegar við fórum útúr herberginu og á röltið :)
En um kvöldið höfðum við það rosalega gott. Við borðuðum á rosalega góðum ítölskum veitingastað í gamla bænum, og fórum svo á hótelið þeirra Ingu og Ragga og héldum áfram að hafa það gott. Það var æði að hitta ykkur!!
Á mánudeginum fórum við Oddgeir svo aftur heim til Lund um kvöldið, en fyst skoðuðum við mannlífið í Stokkhólmi aðeins betur og keyptum okkur hátalara fyrir tölvuna og poppvél. Maður verður nú að geta almennilega horft á video!!!! og svo ekki sé talað um að borða poppkorn!
Og við vorum merkilega fegin að komast heim til Lunds og ná upp svefninum sem við höfðum misst, þó svo að ferðin hafi verið mjög skemmtileg í heildina! ;)
En að öðru og merkilegri hlut!
Í dag gerðist sá merkilegi hlutur að Oggi fór með neðri mörk þyngdar sinnar niður fyrir 3 stafa heiltölu! Já hér er allt að gerast! Ef við förum útí einhverja útreikninga þá tel ég að þessi árangur hafi kostað 250 km á hjólinu í ræktinni og c.a. 15 km hækkun á stigavélinni í ræktinni!
Eins og áður er tekið við sms baráttukveðjum og hamingjuóskum í síma: +46 762 333 217.
Sigga og Oggi

<< Home